Öflug umræðugreining fyrir fyrirtæki
Vaktarinn er öflugt greiningartól sem býður upp á vöktun og greiningu á þeim leitarorðum sem notandi kýs að vakta.
Vaktarinn fer yfir þúsundir greina á dag og rýnir innihald þeirra. Notandi hefur því góða yfirsýn yfir umræðuna, getur tekið saman umræðu fyrri ára og borið hana saman við umræðuna í dag og þannig öðlast víðtækan skilning á því hvað er verið að segja um vörumerkið, fyrirtækið eða stjórnendur þess.
Auðvelt og þægilegt
Vaktarinn er aðgengilegur í gegnum vafra, en lögð er áhersla á að veita notendum auðvelt og þægilegt viðmót sem er jafnframt yfirgripsmikið og ítarlegt.
Hægt er að setja upp margar leitir með mismunandi leitarskilyrðum og fá þannig góða yfirsýn yfir umræðuna, meta árangur markaðsherferða og vera meðvitaður um stöðu sína meðal viðskiptavina.
Tilkynningar Vaktarans
Vaktarinn sendir út tilkynningu þegar hann grípur þau leitarorð sem valið var að leita eftir, og hægt er að fá tilkynningar í rauntíma, tvisvar á dag, daglega eða vikulega.
Tilkynningar Vaktarans er góð leið fyrir fyrirtæki til að koma í veg fyrir misskilning eða til að svara skaðlegri umræðu meðan hún er að gerast. Einnig er hægt að senda tilkynningar á alla notendur Vaktarans í þínu fyrirtæki sem eykur líkurnar á því að fyrr sé gripið í taumana og allir séu meðvitaðir um gang mála.
Berðu þig saman við samkeppnina
Fylgstu með því hvernig umræðan þróast og berðu þig saman við samkeppnina og markaðinn.
Það getur skipt sköpum að vita hvernig samkeppnisaðilar standa, hvernig umræðan þróast hjá þeim og hvað þitt fyrirtæki getur gert til að koma til móts við óánægða viðskiptavini samkeppnisaðila.
Áskrift að Vaktaranum
Hafðu samband til að koma í áskrift og byrjaðu að vakta umræðuna um þitt fyrirtæki. Einnig getur þú sent fyrirspurn hafir þú einhverjar spurningar.
Mánaðargjald
- 1-2 notendur
- 19.950 kr.
- 3-5 notendur
- 39.950kr.
- 6-10+ notendur
- Hafðu samband
Athugið, verðin eru án VSK.