Veitt þjónusta
Keldan veitir áskrifanda aðgang að rauntíma markaðsgögnum í appi og veflausn. Í upplýsingaþjónustunni felst aðgangur að íslenskum hluta- og skuldabréfaupplýsingum í rauntíma.
Áskrift
Til að gerast áskrifandi verður notandi að kaupa áskrift í forritinu eða með því að hafa samband við Kelduna. Áskriftin er endurnýjuð mánaðarlega þangað til henni er sagt upp. Áskriftin er gjaldfærð fyrir hvern mánuð fyrirfram. Ef ekki tekst að gjaldfæra verður áskrift að rauntímaupplýsingum lokað og notandi fær aðgang að seinkuðum gögnum.
Uppsögn á áskrift
Áskriftir eru rukkaðar í mesta lagi 24 tímum fyrir byrjun næsta áskriftartímabils. Ef segja á upp áskrift skal það gert í stillingum App Store fyrir iOs eða Play Store fyrir Android eða með því að hafa samband við Kelduna. Segja þarf upp áskrift minnst 24 tímum áður en næsti gjalddagi rennur upp, að öðrum kosti verður áskriftin gjaldfærð og fæst ekki endurgreidd. Uppsögn tekur gildi daginn fyrir næsta gjalddaga sem uppsögn berst. Lokast þá aðgengi áskrifanda að rauntímagögnum Keldunnar.
Endurgreiðsla
Áskrift getur fengist endurgreidd ef að rauntímagögn berast áskrifanda ekki vegna galla í Keldu appinu.
Verð
Keldan áskilur sér rétt til breytinga á verði og skulu breytingar tilkynntar áskrifanda, með tölvupósti á uppgefið tölvupóstfang áskrifanda.
Framsal réttinda og miðlun upplýsinga
Áskrifanda er ekki heimilt að framselja áskrift sína til þriðja aðila án samþykkis Keldunnar. Áskrifanda er ekki heimilt að miðla til þriðja aðila upplýsingum sem sóttar eru gegnum App Keldunnar eða vef.
Flokkun áskrifenda
Áskrift að rauntímagögnum í appinu og á vefnum er rukkuð samkvæmt flokkun Kauphallar Íslands á viðskiptavinum. Viðskiptavinir geta talist almennir fjárfestar eða fagaðilar.
Með því að samþykkja þessa skilmála þá staðfestir áskrifandi flokkun.
Í reglum Kauphallar Íslands eru áskrifendur að rauntíma aðgangi flokkaðir í tvo flokka: almennir fjárfestar sem eru ekki fagfjárfestar (e. non-professionals) og fagaðilar (e. professionals). Samkvæmt reglum kauphallarinnar er verðmunur á áskriftarleiðum fagaðila og almennra fjárfesta. Áskrifendur verða að staðfesta hvort þeir flokkist sem almennir fjárfestar eða fagaðilar.
Almennur fjárfestir sem er ekki fagaðili:
Einstaklingur eða lögaðili sem ekki flokkast sem fagaðili, fagfjárfestir eða viðurkenndur gagnaðili.
Fagaðili, fagfjárfestir og/eða viðurkenndur gagnaðili::
"A customer who uses market data to carry out a regulated financial service or regulated financial activity or to provide a service for third parties, or who is considered to be a large undertaking, i.e. meeting two of the following size requirements on a company basis: (i) balance sheet total of EUR 20 000 000 (ii) net turnover of EUR 40 000 000 (iii) own funds of EUR 2 000 000."
Einstaklingur sem starfar sem fagaðili t.d. við verðbréfamiðlun eða fjárfestingaráðgjöf.
Ef í ljós kemur að áskrifandi flokkist sem fagaðili verður áskrift lokað og kauphöllin áskilur sér þann rétt að rukka viðkomandi samkvæmt verðskrá fagaðila. Þeir áskrifendur sem að falla undir fagaðila geta sótt um aðgang að KODIAK Pro með því að senda tölvupóst á help@kodi.is.
KELDAN ehf.
KT. 491009-0200 - VSK 103750
Borgartún 25, 2. hæð, 105 Reykjavík
Sími +354 510 1050
Netfang info@kodi.is