Traustar upplýsingar
Verðmats þjónusta Keldunnar er sniðin að þörfum kaupanda og miðar að því að tryggja upplýsta ákvörðun um kaup og sölu fyrirtækja, og að slík viðskipti grundvallist á traustum og gagnreyndum upplýsingum.
Keldan skipar þaulreyndu starfsfólki með aðgengi að víðtækum gagnasöfnum, greiningartólum og nýjustu markaðsgögnum.
Gögn fyrir verðmat
Eftir að verðmat er pantað gefst kaupanda kostur á að skila inn:
- Tekjuáætlun fyrirtækisins til 5 ára.
- Kostnaðaráætlun fyrirtækisins til 5 ára.
- Fjárfestingarþörf fyrirtækis til 5 ára.
Ef ofangreind gögn eru ekki til staðar gæti það bitnað á nákvæmni verðmatsins og mögulega gefið lakari mynd af verðmætinu.
Innifalið í sérsniðnu verðmati
Keldan skilar frá sér verðmati fyrirtækisins sem óskað var eftir og forsendum þess ásamt eftirfarandi gögnum:
- Sjóðstreymisverðmat
- Markaðssamanburði
- Næmnigreiningu
- Markhópalista frá Keldunni fyrir ÍSAT grein fyrirtækisins
- Gögn á PDF og Excel formi
Verð: 590.000 kr. án vsk.
Fyrirvari
Verðmatið sem hér er veitt er útbúið eftir bestu fáanlegum upplýsingum og út frá almennum upplýsingum um markaðsaðstæður og aðrar forsendur sem voru tiltækar við útgáfu þess. Keldan ehf. og tengdir aðilar bera enga ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli verðmatsins, né er ábyrgð tekin á mögulegum skaða eða tjóni sem gæti hlotist af slíkum ákvörðunum. Verðmatið er ekki ráðgjöf eða tilmæli um kaup eða sölu, heldur einungis mat á verðmæti út frá þeim forsendum sem liggja fyrir. Verðmatið endurspeglar ekki endilega framtíðarverðmæti viðkomandi félags og er bundið við forsendur sem kunna að breytast.